Karlakórinn Hreimur - Heim BALDUR.ORG WEB SOLUTIONS
haus
Heim Innskra Myndasafn Dagatal Saga Medlimir Hafdu samband
Vorfagnaður 2012
Höfundur: EB   
23/03 ´12
hreimur_forsida_skrain2.jpg

Athugasemd

 
Ungverjaland...afar skemmtileg ferð
Höfundur: EB   
04/05 ´11

Karlakórsfélagar og eiginkonur þeirra fór frábæra ferð til Ungverjalands með viðkomu í Kaupmannahöfn dagana 15.- 24.apríl sl. Kórinn dvaldi í Búdapest í 5 nætur og hélt eina tónleika með tveimur öðrum kórum. Síðan var farið að Balatonvatninu og gist þar í þrjár nætur en þar einstaklega fallegur staður til að dvelja. Á heimleiðinni var gist eina nótt í Kaupmannahöfn og borgin skoðuð síðasta daginn áður flogið var heim til Íslands, sunnu-daginn 24.apríl. Þessi ferð var í alla staði glæsileg. Veður var einstaklega gott,sól og hiti um 24-26 gráður alla daga. Farið var í margar skoðunarferðir um Búdapest og helstu perlur borgarinnar skoðaðar. Siglt var á Dóná og snæddur dýrindis matur. Farið var um sveitir og mörg falleg þorp skoðuð. Farastjóri og skipuleggjandi ferðarinnar var ungverjinn Utassy Ferenc sem gerði ferðina ógleymanlega fyrir alla. Ferðanefnd Hreims á þakkir skyldar fyrir góðan undirbúning og alla skipulagningu en í nefndinni sitja þeir Hallgrímur Valdimarsson,Friðrik Steingrímsson og Sigurður Böðvarsson. Mögulegt er að sjá nokkrar myndir úr ferðinni sem Bjarni Aðalgeirsson tók: Netslóðin er: www.sunnamj.123.is

Athugasemd

 
Frábærar undirtektir á Vortónleikum
Höfundur: EB   
10/04 ´11

Vortónleikar karlakórsins Hreims var haldin að Ýdölum laugardaginn 2.apríl og var húsfyllir á þessum frábæru tónleikum. Tónleikarnir báru yfirskriftina Rússarnir koma og eins og titillinn ber með sér var rússnesk tónlist meginviðfangsefni kvöldsins. Gestasöngvarar með kórnum voru Gissur Páll Gissurarson og Hera Björk Þórhallsdóttir og veislustjórn var í höndum Níelsar Árna Lund sem sló á létta sögustrengi. Kórstjóri er Aladar Rácz og undirleikari Sólveig Anna Jónsdóttir. Eiginkonur kórmanna buðu veislugestum upp á glæsilegt kaffihlaðborð.

Tónleikarnir voru hin besta skemmtun og undirtektir gesta frábærar. Gissur Páll og Hera Björk heilluðu tónleikagesti með fögrum söng og alþýðlegri framkomu. Þau sungu ein og einnig með kórnum og þótti mikilfenglegt að heyra flutning Gissurar ásamt kórnum á rússneska þjóðlaginu Kalinka og flutning Heru og kórsins á danska júrovisionlaginu Someday.Tónleikagestir voru alsælir með kvöldið og þökkuðu fyrir sig með uppklappi. Hér eru nokkrar myndir frá tónleikunum.

hera_bjrk_-_3.jpghreimur-2.jpg

aladr_-_stjrnandi_hreims.jpghreimur_2011.jpgslveig_anna_-_undirleikari.jpg

sigurur_rarinsson_einsngvari.jpg

hera_bjrk_-_5.jpgsgeir_bvarsson_-_einsngvari_hreims.jpghreimur__allri_sinni_mynd.jpgab35cead-1451-4ec5-ae8f-fa0f80e4cb05_s.jpgniels_rni_lund_-_veislustjri_kvldsins.jpg

gissur_pll_-_3.jpg

Athugasemd